11febrúar

Austan járntjaldsins

Ofurlögga og ofsóknir

Til að byrja með vakti það einungis furðu mína þegar maður strunsar að mér á barnum á Eskifirði, grípur inní samræðurnar einsog honum sé ekkert heilagra og skipar mér að hella niður bjórnum mínum. ,,Nei takk," sagði ég staðfastlega og hélt ofangreindum samræðum áfram. ,,Þú ert ekki nógu gamall til að drekka áfengi." Sagði sá ókunnugi.  ,,Sérðu ekki að ég er að tala við manninn?"  Sagði ég, þambaði mjöðinn, lauk máli mínu og gekk út.  Seinna komst ég að því að ókunnugi maðurinn væri lögregla.
  Næstu nótt er ég staulaðist af barnum stöðvaði sama lögregla bíl sinn og sagði mér að koma og tala við sig.  Ég hef þann góða sið að tala ekki við það fólk sem mér líkar ekki við svo ég hélt göngu minni áfram án þess að veita honum athygli.  Þá varð hann reiður og kallaði á mig aftur.  Kannski var það áfengið, en ég hafði afskaplega gaman að reiði hans.  Svo ég gekk að bifreiðinni og hann skipaði mér að hella bjórnum niður en ég drakk hann í staðinn.  Þá lýsti hann í augu mín með stingandi skæru vasaljósi (líklega því sama og hann hafði lamið félaga minn með kvöldið áður að ástæðulausu) og sakaði mig um eyturlifjaneyslu.  Kallaði mig sjálfhverfan og óábyrgan.  Ég sagði á móti að hann væri ofstækisfullur ofsóknarbrjálæðingur og óréttlátur valdahákur.  Þá sagði hann að ég væri óþroskaður og hefði ekki vit til þess að drekka brennivín.

Ég veit ekki með aðra, en mér þykir þetta óþolandi afskiptasemi.  Sérstaklega í ljósi þess að tiltekinn lögreglumaður stöðvar bíla í tíma og ótíma.  Tekur ökumenn og farþega til yfirheirslu og reinir með klækjum og klóri að draga upp úr fólki eitthvurt skúbb til að geta notað gegn þeim einstaklingum sem hann hreinlega ofsækir.  Í Eskifirði nútímans fer maður ekki frjáls ferða sinna án þess að eiga hættu á að leiðinda lögguþjónn stöðvi mann, jafnvel lemji mann, og skipi manni með harðræði að setjast uppí bíl sinn til yfirheirslu.  Maður þarf að sitja undir óþolandi og ósönnum ásökunum og eiga það á hættu að vera jafnvel færður inná lögreglustöð, klæddur úr fötunum og læstur inní fangaklefa.

Kæri lögregluþjónn. Ef þú hefur orðið svo heppinn að rekast á þessi skrif mín vil ég vinsamlegast biðja þig um að hætta í því starfi sem þú gegnir, það hreinlega hentar þér ekki.  Kannski fæddistu bara á röngum stað eða á röngum tíma.  Það myndi sennilega henta þér príðilega að búa í Búrma.  Þar tíðkast það í mun meira magni að yfirvaldið níðist á saklausum smælingjum í óréttlátri valdagrægði sinni.  Þú myndir eflasut sóma þig vel í Norður-Kóreu eða í slagtogi með meistara Pútín.

Friðbergur
11. febrúar 2008 klukkan 17:22
Friðbergur Hreggviðsson
4 athugasemdir
01desember

Return of the Jedi

Fyrirsögn bloggsins kemur ykkur sennilega sponskt fyrir sjónir, enda ekki furða. En þannig eru mál með vexti og vöxtum að ég er búinn að vera i jedi námi og er fjarvera mín frá bloggheiminum af þess völdum.  Ég held ótrauður áfram og ég stefni á meistaranám eftir áramót.

may the force be with you

01. desember 2006 klukkan 21:50
Friðbergur Hreggviðsson
5 athugasemdir
09ágúst

Vonbrigði, viðbjóður, vinna og endalaus gleði

Ég held ég sé lélegasti motherfucking bloggari í heimi!

Þrjár Massífar helgar eru liðnar frá síðasta bloggi: Lunga, Belle & Sebastian og Verslunarmannahelgin.  Lunga og B&S voru alveg hreint æði fínt sjitt.  Hellingur af skemmtilegu fólki og skemmtilegri tónlist.  Undanfari verslunarmannahelgarinnar ásamt helginni sjálfri fóru í klósetið.  Ætlaði annaðhvort að sjá Sigurrós á Snæfelli eða á Seyðisfirði en sökum vinnu og viðbjóðs gat ég það ekki.  Ég ætlaði nú aldeilis að fokka á örlögin og húkka mér far í Ásbirgi eftir vinnu á föstudegi sem átti að vera stutt en sú var nú aldeilis ekki raunin og þurfti ég að vinna á Laugardeginum líka!  Eftir öll þessi vonbrigði var lítið annað í stöðunni en að drekkja sorgum mínum í áfengi á villimannahátíð í Neskaupsstað.  Það var samt ljómandi gaman og mikið var af rugli, sprelli og vitleysu.

   Tímanum á milli helganna þriggja er ég búinn að eyða í: Vinnu og ekki vinnu, vídjógláp og bókalestur, póker og hakkíspilun, tölvuhangsi og einni bíóferð.  Semsagt ljómandi líf.

Æj fokk! Var víst búinn að blogga um Lunga :)

09. ágúst 2006 klukkan 05:48
Friðbergur Hreggviðsson
3 athugasemdir
25júlí

Síðbúið helgarblogg

Föstudagur:
Föstudagurinn einkenndist af dragarabilun og ógeðslöndun.

 

Laugardagur/Sunnudagur:
Laugardagurinn og Sunnudagurinn runnu á hinn furðulegasta hátt saman. 

Ég skellti mér til Seyðisfjarðar á Laugardeginum.  Sá dagur einkenndist af ofdrykkju áfengis og skemmtilegum tónleikum, of miklu dauðadaðri og of miklum svefni fyrir utan shellskálann, of litlu hamborgaraáti og of mikilli hamborgaraælu, of mikilli vöku og alltof mikilli þynnku. 

Einhversstaðar í miðju oflætinu kláraðist laugardagurinn og sunnudagurinn tók við.

Seint og um síðir fór ég að sofa og vaknaði alltof snemma og sníkti mér far á Egilsstaði.  Þar framkvæmdi ég aðra tilraun til hamborgaraáts.  Það gekk fínt.  Það var svo geðveikt veður á Egilsstöðum að ég og Gústi hoppuðum í Eivindaránna.  Ég gerðist ofurhetja og hoppaði fram af brúnni og stóra klettinum.  Gústi gerðist gunga og hoppaði einungis af litla klettinum.  Eftir ofurhetjuathöfnina fór ég kaldur, blautur og hálfnakinn í bíl á leiðinni til Eskifjarðar.  Þar svaf ég meira.

Gleðigleðigleði.

25. júlí 2006 klukkan 23:22
Friðbergur Hreggviðsson
6 athugasemdir
15júlí

Roskilde festival. Tilraun nr. 2

Hérna fær það fámenni sem les á þessari síðu Hróaskelduskrifstrilraun nr. 2 til aflestrar.  Því miður verður þessi pistill ekki nærri því jafn megaskemtilgur og sá fyrri, einfaldlega af þeirri ástæðu að ég er ekki í jafn megagóðu Hróaskelduskrifstuði núna.  Mér fannst ég samt sem áður knúinn til þess að skrifa um för mína til fyrirheitna landsins fyrst ég kom þessari bloggsíðu bölvans upp á annað borð.

 

Hrói brói var geðveikur.  Endalaust af brjáluðum tónleikum, endalaust af góðu veðri og endalaust af fínum og ódýrum bjór.  Er hægt að biðja um meira?

 

Perla stóra systir var hinn eini og sanni Hróaskeldufélagi.  Að minnsta kosti hinn sanni, ekki alveg eini.  Ekki gafst tími né nenna til að skipuleggja hitting við annað fólk.  Ég reyndi það smávegis en yfirleitt fór það einhvern veginn úrskeðis.  Ég átti nógu erfitt með að finna mitt eigið tjaldsvæði hvað þá að reina að finna tjaldsvæði einhverra annarra.  Áttavit á ekki við mig.  Sem betur fer var einn af reyndari Hróaskelduförum í víðri veröld mér við hlið til að kynna mig fyrir svæðinu.

 

Eftir mikla freknu og rauðkusöfnun á Hróa tók við enn meiri freknu og rauðkusöfnun í Köben.  Mestur tíminn í Köben fór í að tjilla og njóta sólarinnar og lífsins í Kristjaníu og á Íslandsbryggju.

 

Ég gæti svo sem skrifað mun meira og mun ítarlegri pistil um þetta alltsaman en ég hugsa að ég hlífi þér við því þar til síðar.

15. júlí 2006 klukkan 02:10
Friðbergur Hreggviðsson
6 athugasemdir
11júlí

FOKK MAÐUR!!!

var búinn að skrifa heljarinnar gleðitexta um Hróaskeldu og Köben en síðan ítti ég á vista (að ég held) og það vistaðist ekkert og textinn hvarf og eitthvað rugl.
Ég á sennilega aldrei eftir að nenna að blogga aftur.  Þessi texti kom mér í gott skap en núna er ég í vondu skapi.
11. júlí 2006 klukkan 01:28
Friðbergur Hreggviðsson
3 athugasemdir
10júlí

Margskeitla til ástarinnar minnar

Elskaðu mig beibí.
Ég er glaður, graður.
Sólin er mín, hún skín.
Ekki ríða, ekki bíða.
Mér er alveg sama, tilfinningar lama.

Elskaðu mig beibí.
Ég er glaður, ég skín.
Kúkur-fortíð, kúkur-framtíð.
Ég er þinn og þú ert minn
að eilífu, að eilífu.
Ekkert grín, ég hrín, ég er svín,
en það er fínt, ég get það sínt.

Ég á mér heim, heilan geim
sem þú fittar ekki inní
en kommon ekkert er fullkomið

ekkert, ekkert, ekkert.
aldrei, aldrei, aldrei .

Þetta er fínt, þetta er gott.
Þetta er verst, þetta er best.
Ég brosa rosa
Reiði, greiði? seiði!
Draugur haugur
10. júlí 2006 klukkan 03:58
Friðbergur Hreggviðsson
4 athugasemdir

Aðalvalmynd

Auglýsing

Samband?

Ef þú ert ekki eitthvert ógeðs perraógéð, tölvuskemmileggjari eða eitthvað annað sem gæti á einhvern hátt skaðað mig sjálfan eða eigur mínar máttu gjarnan hafa samband við mig í gegnum msn eða email ef þú hefur áhuga.

MSN: beggi123@hotmail.com
Email: beggi123@gmail.com

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...